Hatrömm árás á unga baráttukonu sem ver réttindi hinsegin fólks

Vitalina Koval hefur lengi viljað koma á jákvæðum breytingum í samfélaginu. Hún nýtir ómælda elju sína og styrk til að styðja við bakið á hinsegin fólki á heimaslóðum sínum í borginni Uzhgorod í Úkraínu. Vitalina, ásamt öðrum aðgerðasinnum, varð hins vegar fyrir hrottafenginni árás af hálfu öfgahægrihóps fyrir það eitt að tala opinberlega gegn hatri.

Þann 8. mars 2018, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, átti Vitalina þátt í að skipuleggja friðsamlega kröfugöngu til stuðnings réttindum kvenna og hinsegin fólks. Áður en kröfugangan hófst fullvissaði lögreglan hana um að mótmælendur myndu njóta fullrar verndar í göngunni. Þegar baráttudagurinn rann upp tók hópur einstaklinga sem tilheyra öfgahægrihópnum ‘Karpatska Sich’ sig saman, hrópaði ókvæðisorðum að Vitalinu og köstuðu rauðri málningu yfir hana með þeim afleiðingum að hún blindaðist nánast. Frá því að mótmælagangan fór fram í mars 2018 hefur Vitalina ásamt öðrum sætt hótunum og vinum hennar verið hótað og þeim veitt eftirför á leið heim til sín. Tveir aðgerðasinnar greindu frá ofbeldi sem þeir urðu fyrir í kjölfar þess að vera veitt eftirför.

Árásirnar eru hluti af stærri árásahrinu og ógnunum af hálfu öfgahægrihópa í Úkraínu sem halda því fram að þau gildi sem einstaklingar eins og Vitalina hafa í hávegum séu „óheilbrigð“. Vitalina og annað baráttufólk fyrir mannréttindum neitar að lúta í lægra haldi fyrir hatri og ótta. Stöndum með þeim!

Krefðu stjórnvöld í Úkraínu um að vernda Vitalinu og aðra aðgerðasinna sem verja réttindi kvenna og hinsegin fólks.

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.