Heimatilbúin sprengja fyrir utan heimili ungs umhverfissinna

Leonela Moncayo er umhverfissinni frá Amazon-skóginum í Ekvador og ein af níu stúlkum sem fóru í mál við stjórnvöld þar í landi og kröfðust lögbanns á gasbruna í nágrenni við heimili þeirra á þeim grundvelli að brotið sé á mannréttindum þeirra. Héraðsdómstóll úrskurðaði stúlkunum í hag en þrátt fyrir það eru enn gasbrunar á svæðinu. Amnesty International á Ameríkusvæðinu styður baráttu stúlknanna og Íslandsdeildin safnaði framlögum með herferð í september síðastliðinn.

Nú er talið að öryggi stúlknanna og fjölskyldna þeirra sé í hættu en þann 26. febrúar varð sprenging fyrir utan heimili Leonela af völdum heimatilbúinnar sprengju. Þetta gerðist fimm dögum eftir að Leonela og hinar stúlkurnar voru fordæmdar af orkumálaráðherranum á þjóðþingi Ekvadors vegna aðgerða þeirra gegn gasbrunum.

Amnesty International hefur fengið þær upplýsingar að atvikið sé í rannsókn en  yfirvöld hafa ekki enn rannsakað það sem gerðist með fullnægjandi hætti.

Yfirvöld buðu stúlkunum og fjölskyldum þeirra vernd á meðan rannsókn stendur yfir en settu þau skilyrði að á meðan mættu stúlkurnar ekki sinna aðgerðastarfi sínu eða tjá sig um gasbrunana. Þetta brýtur gegn alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum Ekvadors.

Skrifaðu undir og krefstu þess að stjórnvöld í Ekvador rannsaki það sem gerðist með fullnægjandi hætti og verndi Leonela, hinar stúlkurnar átta og fjölskyldur þeirra án skilyrða um að þær þurfi að hætta aðgerðastarfi sínu á meðan.

Styrktu verkefnið hér.

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.