Hundelt fyrir að krefjast betra lífs!

Nawal Benaissa er reiðubúin að verja það sem hún trúir á. Hún berst fyrir félagslegu réttlæti og betri heilbrigðisþjónustu í sínum landshluta í Rif í Marokkó, þar sem margir íbúanna upplifa algjört afskiptaleysi af hálfu stjórnvalda. Nawal er meðal nokkurra einstaklinga sem gegna forystu innan vinsællar hreyfingar í Marokkó sem kallast Hirak og sem einn leiðtoga hennar hefur hún staðið fyrir friðsamlegum mótmælum og barist fyrir umbótum á samfélagsmiðlum.

Í hverju skrefi hefur Nawal sætt árásum af hálfu stjórnvalda í Marokkó í tilraun þeirra til að þagga niður í henni. Stjórnvöld handtóku hana fjórum sinnum á fjögurra mánaða tímabili, héldu henni í varðhaldi og kröfðust þess að Nawal lokaði vinsælli Facebook-síðu sinni sem er með 80.000 fylgjendur.

Í febrúar 2018 hlaut Nawal tíu mánaða skilorðsbundinn dóm og sekt fyrir að „hvetja til lögbrota“. Hún hefur áfrýjað dómnum en árásir á hendur henni af hálfu stjórnvalda halda áfram. Nawal flúði til annarrar borgar í Marokkó til að komast hjá stöðugu eftirliti.

Meðferðin á Nawal er hluti af stórfelldri herferð stjórnvalda gegn Hirak-hreyfingunni og leiðtogum hennar. Öryggissveitir í Marokkó hafa handtekið hundruð friðsamra mótmælenda, nokkra fyrir það eitt að tjá stuðning sinn við hreyfinguna á Facebook.

Lausnin er ekki einföld fyrir Nawal en hún óskar þess eins að vera frjáls til að heyja baráttu sína fyrir betri framtíð fyrir sig og börnin sín.

Krefðu forsætisráðherra Marokkó um að koma í veg fyrir frekari árásir af hálfu stjórnvalda á Nawal.

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.