Krefjumst réttlætis fyrir friðsama mótmælendur í Tælandi

Nemendur og ungt baráttufólk í Tælandi hefur verið í fararbroddi í fjöldamótmælum, sem haldin hafa verið reglulega frá því í júlí 2020, þar sem krafist er umbóta í landinu.

Stjórnvöld hafa sett á neyðarlög sem banna fólki að koma saman og segja ástæðuna vera til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Ungt fólk sem mótmælir og jafnvel tjáir sig á netinu hefur í auknum mæli verið handtekið og ákært.

Fjöldi fólks hefur verið lengi í haldi og margir einnig smitast af kórónuveirunni í varðhaldi. Lögreglan hefur beitt óhóflegu valdi til að leysa upp mótmæli og verður valdinu sem beitt er sífellt grófara. Nú, ári síðar, eiga hundruð von á málaferlum.

Krefstu þess að tælensk stjórnvöld noti ekki heimsfaraldurinn sem afsökun til að svipta fólki mannréttindum.

Stöndum saman til að vernda réttinn til friðsamra mótmæla!

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.