Læstur inni fyrir ljóðaslamm

Paing Phyo Min hefur unun af söng og að spila á gítar. Hann er 22 ára stúdentaleiðtogi og meðlimur í Peacock Generation, leikhóp sem helgar sig sérstöku gjörningalistformi sem kallast Thangyat þar sem bundið mál er flutt ásamt gamanleik og tónlist. Oftast er efnt til Thangyat í apríl þegar íbúar Mjanmar halda árlega vatnshátíð.

Í apríl og maí 2019 voru Paing Phyo Min og aðrir meðlimir Peacock Generation handtekin eftir að hafa tekið þátt í gjörningi þar sem þau komu fram í herklæðum. Þau gerðu grín að hernum, sögðu að hann gæti ekki tekið gagnrýni, ríghéldi í völd sín, arðrændi landsmenn og hershöfðingjar söfnuðu auði.

Paing Phyo Min var sakfelldur og dæmdur í sex ára fangelsi. Ákærurnar á hendur honum tóku m.a. til „undirróðurs“, þ.e. að hvetja hermenn til að hlaupast undan merkjum, og „meiðyrða á netinu“ vegna mynda og myndbanda sem leikhópurinn deildi á netinu. Mynd af hundi í herklæðum kom sérstaklega við kaunin á yfirvöldum. „Við höfum tekið þátt í þessari gjörningalist allt frá 2013,“ segir Paing Phyo Min. „Við höfum átt í beinum samskiptum við almenning og sagt skoðun okkar á því sem er að í samfélagi okkar, m.a. með gagnrýni á stjórnvöld. Árið 2019 beindi herinn spjótum sínum að okkur. Hann grefur undan lýðræðisþróun í landinu. Við verðum kannski sett í fangelsi en við látum það ekki draga úr okkur kjarkinn til að segja hug okkar.“

Krefstu þess að stjórnvöld í Mjanmar leysi Paing Phyo Min skilyrðislaust og án tafar úr haldi.

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.