Leikari í fangelsi í kjölfar ósanngjarnra réttarhalda

Andro Chichinadze, 29 ára leikari frá Georgíu, var dæmdur í tveggja ára fangelsi 3. september 2025 eftir þátttöku í mótmælum í Tbilisi. Hann er vel þekktur í Georgíu og hefur hann gagnrýnt stjórnvöld opinberlega. Hann var einnig virkur þátttakandi í mótmælum frá nóvember til desember 2024.  

Mótmælendur handteknir 

Andro var handtekinn í desember 2024 ásamt öðrum mótmælendum. Hann var einn af 19 mótmælendum sem voru sakfelldir í kjölfar ósanngjarnra réttarhalda. Þeir voru ákærðir fyrir að „taka þátt í hópóeirðum“ en ákærur á hendur þeim voru á pólitískum rótum runnar. Andro og hinir mótmælendurnir sátu átta mánuði í gæsluvarðhaldi þar til þeir voru sakfelldir.  

Skortur á sönnunargögnum 

Helsta sönnunargagn gegn Andro var myndband frá mótmælunum þar sem hann virðist kasta spýtu. Yfirvöld hafa ekki getað sýnt fram á hvar spýtan lenti eða hvort hún hafi valdið einhverjum skaða. Enn fremur tókst yfirvöldum ekki að sýna fram á að verknaður Andro hafi verið skipulagður eða af ásettu ráði eins og lögin kveða á um.  

Herjað á gagnrýnendur 

Andro er einn fjölmargra listamanna og aðgerðasinna sem georgísk yfirvöld hafa herjað á til að bæla niður gagnrýni.  

Skrifaðu undir og krefstu þess að Andro og hinir 18 mótmælendurnir verði leystir úr haldi og fái sanngjörn réttarhöld.  

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.