Leysið friðsama mótmælendur úr haldi

Þúsundir komu saman þann 11. júlí á Kúbu til að mótmæla ríkisstjórninni vegna efnahagsástandsins, skorts á lyfjum, og almennra takmarkana á tjáningarfrelsinu. Mögulega eru hundruð mótmælenda í fangelsi og ríkið þaggar niður í gagnrýnisröddum með fjölda ákæra. Krefjumst þess að friðsamir mótmælendur verði leystir umsvifalaust úr haldi án skilyrða. 

Amnesty International hefur talað við fjölda ættingja þeirra sem eru í haldi vegna mótmælanna. Þeir segja að yfirvöld hafi ekki gefið upplýsingar um hvar ættingjar þeirra séu í haldi. 

Að virða og vernda grundvallaréttindi fanga, eins og samskipti við umheiminn og heimsóknir fjölskyldu, er mikilvægt til að koma í veg fyrir að þeir sæti alvarlegum mannréttindabrotum eins og pyndingum.

Yfirvöld á Kúbu hafa lengi notað ákveðin ákvæði í hegningarlögum (t.d. fyrirlitningu  í garð opinbers starfsfólks, andspyrnu við opinbert embættisfólk og óspektir á almannafæri) til að grafa undan tjáningarfrelsinu og refsa þeim sem gagnrýna ríkisstjórnina. Einnig takmörkuðu stjórnvöld aðgengi að Facebook, Instagram og WhatsApp í landinu sem gerði samskipti erfið.  

Krefstu þess að friðsamir mótmælendur verði leystir umsvifalaust úr haldi án skilyrða. 

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.