Myrt fyrir að vera óttalaus í baráttu sinni fyrir aðra
Marielle Franco var óttalaus í baráttu sinn fyrir réttlátari og öruggari Rio de Janeiro. Hún var vinsæll borgarfulltrúi en hún hafði alist upp í fátækrahverfi og studdi ávallt réttindi svartra kvenna, hinsegin fólks og ungs fólks. Hún fordæmdi að auki morð af hálfu lögreglu. „Hún var ávallt í fararbroddi og tókst á við allt af festu,“ segir faðir hennar, Antonio.
Þann 14. mars 2018 var Mariella myrt. Hún var skotin til bana í bíl sínum ásamt bílstjóra sínum, Anderson Pedro Gomes. Sönnunargögn benda til þess að morðið hafi verið framið af færum atvinnumanni og sérfræðingar segja að byssukúlurnar hafi tilheyrt brasilísku ríkislögreglunni.
Brasilía er eitt af hættulegustu löndum fyrir mannréttindafrömuði eins og Marielle, þar sem að minnsta kosti sjötíu slíkir hafa verið myrtir. Alltof oft eru morðin ekki rannsökuð og hinir ábyrgu eru frjálsir ferða sinna. Fólk sem berst fyrir mannréttindum lifir í stöðugum ótta.
Saman getum við sýnt brasilískum yfirvöldum að við munum ekki hætta fyrr en réttlætinu er náð. Þau verða að vernda mannréttindafrömuði fyrir frekari árásum jafnframt því að hafa uppi á morðingja Marielle. Með orðum systur hennar, Anielle: „Svo lengi sem við höfum styrkinn munum við krefjast réttlætis.“
Krefstu réttlætis fyrir Marielle í dag.
