Ofsótt fyrir að valdefla ungt fólk
Geraldine Chacón hefur ávallt viljað verja aðra. Þegar hún var níu ára dreymdi hana um að verða lögfræðingur. Fjórtán ára studdi hún ungliðahreyfingu á vegum yfirvalda í heimabyggð sinni og á háskólaárum sínum stofnaði hún aðgerðahóp innan Amnesty International sem barðist fyrir breytingum. Eins og móðir hennar segir, „hún [Geraldine] barðist gegn öllu óréttlæti sem varð á vegi hennar“.
Þessi ástríða Geraldine varð hvatinn að vinnu hennar fyrir samtök sem valdefla ungt fólk á nokkrum af fátækustu svæðum Karakas, heimabyggðar hennar. Í febrúar 2018 handtóku vopnaðir embættismenn þessa ungu baráttukonu á heimili hennar.
Yfirvöld bendluðu hana ranglega við „andspyrnuhópa“ sem þau ásaka um að skipuleggja ofbeldisfullar kröfugöngur gegn stjórnvöldum. Ofsóknir yfirvalda á hendur Geraldine eru í reynd hluti af viðamikilli herferð stjórnvalda gegn öllum þeim sem gagnrýna þau og reyna að verja mannréttindi landsmanna í því kreppuástandi sem nú ríkir í Venesúela.
Að lokinni fjögurra mánaða fangavist við skelfilegar aðstæður var Geraldine skilorðsbundið leyst úr haldi í júní árið 2018. Hún getur ekki farið úr landi og mál hennar er enn opið svo hún á á hættu að vera handtekin hvenær sem er án nokkurrar ástæðu. Geraldine, ásamt fjölda annarra aðgerðasinna, sætir daglegum ógnunum fyrir það eitt að reyna að bæta lífið í landi sínu.
Krefðu stjórnvöld í Venesúela um að hætta án tafar að áreita Geraldine
