Rekin með valdi af landi forfeðra sinna
Sengwer-fólkið í Kenía hefur sterk andleg tengsl við hinn mikilfenglega og víðáttumikla Embobut-skóg. Þetta er land forfeðra þess og hefur það búið þar öldum saman. Þetta samfélag frumbyggja sem eru býflugnaræktendur og nautgripahirðar eru kenísk yfirvöld að reka með valdi af landi sínu.
Í nafni náttúruverndar hafa skógarverðir og lögregla kveikt í einum 2.600 húsum frá árinu 2012 og gert 4.600 einstaklinga heimilislausa. Í janúar 2018 var karlmaður skotinn til bana og annar særðist alvarlega. Ofbeldið er afdráttarlaust brot gegn ítrekuðum dómsúrskurðum sem hafa fyrirskipað vernd frumbyggjasamfélagsins.
Sengwer-fólkið er að missa heimili sitt, lífsviðurværi og menningararfleifð sína. Sumt af fólkinu býr ekki lengur í skóginum og hefur verið skilið eftir í örbirgð. Það bitnar mest á konunum þar sem þær basla við að sjá fyrir fjölskyldum sínum af því að sumir karlmennirnir eru áfram í skóginum eða hafa yfirgefið fjölskyldur sínar.
Stjórnvöld segja að þau vilji draga úr skógareyðingu en það er ekkert sem bendir til þess að Sengwer-fólkið valdi eyðingu skógarins. Það ætti að viðurkenna þetta frumbyggjasamfélag sem eigendur og verndara Ebobut-skógarins þar sem það byggir lífsviðurværi sitt og sjálfsmynd á honum og hefur sterka andlega tengingu við hann. Sengwer-fólkið er staðráðið í að veita viðnám. Stattu með því í dag!
Krefðu stjórnvöld í Kenía um að leyfa Sengwer-fólkinu að búa á landi sínu í friði.
