Rússland: Fellið niður ákærur á hendur baráttukonu fyrir mannréttindum

Rússneska baráttukonan fyrir mannréttindum og barnalæknir, Yana Antonova, stendur frammi fyrir sex ára fangelsi fyrir að taka þátt í friðsamlegum aðgerðum sem félagi í „óæskilegum samtökum“, sem kallast Opið Rússland.

Yana Antonova er ákærð fyrir brot á lögum um „óæskileg samtök“ en samkvæmt þeim telst það brot að taka þátt í aðgerðum erlendra samtaka sem eru talin „óæskileg“. „Ítrekuð brot“ varða hárri sekt eða fangelsisvist.

Umrædd lög tóku í gildi í maí 2015 og banna í raun allt samstarf við „óæskileg“ samtök í Rússlandi. Þetta er hluti af herferð stjórnvalda gegn tjáningarfrelsinu. Lögunum hefur verið beitt til að banna fjölmörg erlend samtök í Rússlandi. Opið Rússland er í raun ekki samtök og enn síður erlend samtök heldur framtak aðgerðasinna í Rússlandi sem starfa undir kjörorðinu, Opið Rússland. Þrátt fyrir það líta rússnesk yfirvöld á þessa aðgerðasinna sem félaga í erlendum samtökum.

Yana Antonova birti myndband um skort á skólum í Krasnodar Krai og minntist pólitísks aðgerðasinna og blaðamanns sem voru myrtir. Þetta eru talin „ítrekuð brot“ í máli hennar en sakamál gegn henni hófst í maí 2019. Í kjölfarið misstu hún vinnu sína sem barnalæknir.

Krefstu þess að ríkissaksóknari Rússlands felli niður allar ákærur á hendur Yönu Antonova og henni verði gert kleift að halda áfram friðsamlegri baráttu sinni án refsiaðgerða yfirvalda.

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.