Sækja verður morðingjana til saka
Það var föstudagskvöld í maí 2017. Líkt og gildir um margt tvítugt fólk stefndu Popi Qwabe og Bongeka Phungula út á lífið. Vinkonurnar höfðu kynnst við nám í leiklist í KwaZulu Natal-háskólanum í Durban. Báðar voru ungar og efnilegar og áttu sér þann draum að ná langt á leiksviðinu.
Einhverntíma um kvöldið tóku vinkonurnar leigubíl. Það heyrðist aldrei frá þeim eftir það.
Frávita af áhyggjum leituðu Mdu, frænka Bongeka, og Thembelihle, systir Popi, að þeim stöllum á spítölum og lögreglustöðvum þar til hinn hræðilegi sannleikur rann upp fyrir þeim: stúlkurnar höfðu verið myrtar. Popi og Bongeka voru skotnar til bana og líkin skilin eftir í vegkanti. Sennilega hafði þeim einnig verið nauðgað.
Að sögn fjölskyldna Popi og Bongeka voru morðin aldrei rannsökuð til hlítar. Leigubíllinn kom í leitirnar og blóðblettir og eigur kvennanna fundust í honum. Þó að blóðblettirnir hafi verið rannsakaðir kunngerði réttartæknideild lögreglunnar aldrei niðurstöðurnar. Fjölskyldur kvennanna halda því fram að lögreglan hafi ekki leitað að fingraförum eða rakið síma stúlknanna.
Tveir leigubílstjórar voru handteknir. Þeir voru með eitthvað af eigum stúlknanna í fórum sínum, þar á meðal farsíma og varalit sem þeir sögðust hafa fundið í leigubíl. Lögreglan sleppti mönnunum hins vegar lausum með vísan í skort á sönnunargögnum og málið var látið niður falla þótt rannsókn væri ekki lokið.
Krefstu réttlætis fyrir Popi og Bongeka.
