Spánn: Rappari dæmdur fyrir tíst

Pablo Hasél, spænskur rappari, var nýlega dæmdur í níu mánaða fangelsi og sektaður um 30 þúsund evrur fyrir vegsömun hryðjuverka sem og fyrir róg og níð gegn krúnunni og stjórnkerfi landsins. Dómurinn var byggður á 64 tístum og einu rapplagi. Hann er dæmdur fyrir það eitt að nýta tjáningarfrelsið sitt.

Pablo Hasél er ekki sá eini, notendur samfélagsmiðla, fjölmiðlafólk, tónlistarfólk og lögfræðingar hafa verið ákærð fyrir sömu brot á Spáni. Áhrifin eru hrikaleg fyrir einstaklinga: Háar sektir, útilokun frá opinberum vettvangi í langan tíma, fangelsisdómar og síðast ekki síst óáþreifanleg áhrif eins og sjálfsritskoðun vegna ótta við refsingu.

Hlutskipti César Strawberry, söngvara hljómsveitarinnar Def con Dos, voru svipuð. Hann var ákærður fyrir „vegsömun hryðjuverka“ fyrir nokkur tíst. Að auki var rapparinn Nyto Rukeli, meðlimur í tónlistarhópnum La Insurgencia, dæmdur fyrir sömu ákæruliði vegna lagatextans: „Jafnvel neðanjarðar verður ekki þaggað niður í mér, ekki er hægt að fangelsa listina.“ (spænska:  „Ni bajo tierra me callarán, no puede encarcelarse el arte”)

Rapp er ekki glæpur. Að tísta brandara er ekki hryðjuverk. Hegningarlög eiga ekki að gera tjáningu eða listræna sköpun að glæp þar sem það brýtur gegn tjáningarfrelsinu. Óþægileg eða hneykslanleg tjáning sem telst ekki til hatursorðræðu er ekki glæpur samkvæmt alþjóðalögum.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur gefið það út að lög um meiðyrði sem hindra eða sekta fyrir réttmæta gagnrýni á stjórnvöld eða embættisfólk brýtur gegn tjáningarfrelsinu.

Skil­grein­ingin í ákvæði 578 í spænskum hegn­ing­ar­lögum á því að „vegsama“ hryðju­verk er svo víðfeðm að spænskir borg­arar eiga á hættu saksókn fyrir lögmæta tján­ingu.

Ákvæði um refs­ingu fyrir vegsömun hryðju­verka, róg og níð gegn krún­unni og ríkis­stofn­unum eða fyrir að misbjóða trú eiga ekki heima í hegn­ing­ar­lögum sem þurfa að virða og vernda mann­rétt­indi og vera í samræmi við alþjóðalög.

Verndaðu tján­ing­ar­frelsið og krefstu þess að stjórn­völd á Spáni:

1) Afnemi þessi ákvæði úr hegningarlögum.

2) Felli niður allar ákærur sem eru byggðar á ákvæði 578 og leysi alla einstak­linga úr haldi sem hafa verið fang­els­aðir á grund­velli þess fyrir að nýta rétt sinn til tján­ingar með frið­sömum hætti.

Lestu nánar um mál Césars og stöðu tjáningarfrelsisins á Spáni hér

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.