Þungaðar stúlkur fái aðgang að menntun

Í apríl 2015 fyrirskipuðu stjórnvöld í Síerra Leóne að þungaðar stúlkur mættu hvorki ganga í skóla né taka próf. Þetta voru viðbrögð stjórnvalda við gífurlegri fjölgun þungana unglingsstúlkna sem var ein hræðilegasta afleiðing ebólu-faraldursins sem herjaði á Afríku árin 2014-2015.

Góð frétt: Banninu var aflétt í lok mars 2020.

Tilkynnt var um tíu þúsund tilfelli þungana unglingsstúlkna þegar ebólu-faraldurinn reið yfir. Flestar voru afleiðing nauðgana. Í mörgum tilfellum var um að ræða stúlkur sem voru þvingaðar til samræðis við menn í skiptum fyrir mat eða vernd þar sem margar voru í viðkvæmri stöðu eftir foreldramissi vegna ebólu-veirunnar.

Frá því að skólabannið gegn þunguðum stúlkum var sett á hefur Amnesty International barist fyrir afléttingu þess þar sem um ræðir grófa mismunun og mannréttindabrot. Ekki er einungis brotið á réttinum til menntunar heldur einnig til friðhelgis einkalífs og virðingar.

Lesa má skýrslu Amnesty frá 2015 um málið hér

Þann 12. desember 2019 komst dómstóll Efnahagssambands Vestur-Afríku (ECOWAS) að þeirri niðurstöðu að bann stjórnvalda í Síerra Leóne gegn því að þungaðar stúlkur fengju aðgang að menntun í almennum skólum og að taka próf væri mannréttindabrot og mismunun. Dómstóllinn lýsti því yfir að aflétta þyrfti banninu án tafar þar sem það brjóti í bága við lög í Síerra Leóne, alþjóðalög og samþykktir, þar á meðal Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Dómstóllinn nefndi einnig að það væri á ábyrgð ríkisins að tryggja að bæði kynin hefðu jöfn tækifæri til menntunar án aðgreiningar. Aðgreining þungaðra stúlkna í menntakerfinu útskúfi þeim og gæti litið út sem refsing fyrir þungun.

Skrifaðu undir málið núna!  Krefstu þess að úrskurður dómstóls Efnahagssambands Vestur-Afríku verði virtur án tafar og að þungaðar stúlkur í Síerra Leóne fái óskertan aðgang að menntun strax!

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.