Tryggja þarf mannúðaraðstoð til Gaza

Alþjóða­dóm­stóllinn í Haag (ICJ) gaf út bráða­birgðanið­ur­stöðu þann 26. janúar um að raun­veruleg hætta sé á hópmorði á palestínskum íbúum Gaza. Amnesty Internati­onal kallar á Ísra­els­ríki að hlíta fyrirskipun Alþjóða­dóm­stólsins og að veita fólki á Gaza skil­virka grunn­þjón­ustu og mann­úð­ar­að­stoð án tafar.

Á meðan beðið er eftir endan­legri niður­stöðu vegna ásakana Suður–Afríku á hendur Ísrael um að verið sé að fremja hópmorð , samkvæmt skilgreiningu sáttmála Sameinuðu þjóðanna um hópmorð, hefur dómstóllinn fyrirskipað sex bráðabirgðaráðstafanir sem Ísrael þarf að gera.

Þar á meðal að Ísrael geri allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir aðgerðir sem falla undir sáttmála Sameinuðu þjóðanna um hópmorð og tryggi að hægt sé að veita óbreyttum borgurum á Gaza nauðsynlega þjónustu og mann­úðaraðstoð.

Samt sem áður eykst þunginn í skelfilegum árásum Ísra­els­hers á Gaza. Ísra­elsher hótar land­hernaði á borgina Rafah, að viðhalda umsátri sem er að nánast öllu leyti ólög­legt og ómann­úð­legt og hefta aðgang lífs­nauð­syn­legrar mann­úðaraðstoðar.

Skrifaðu undir og krefstu þess að forsætisráðherra Ísraels komi í veg fyrir að mannúðarneyðin aukist enn frekar og framfylgi úrskurði Alþjóðadómstólsins með því  að tryggja mannúðaraðstoð og læknisaðstoð fyrir alla íbúa Gaza í samræmi við alþjóðalög.  

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.