Tveggja ára fangelsisdómur fyrir fréttamennsku

Blaðamaðurinn Khaled Drareni deilir þeim draumi með mörgum Alsírbúum að frelsi og jafnrétti komist á í landinu. Þegar almenningur flykktist út á götur í febrúar árið 2019 til að krefjast þessara umbóta tók Khaled þátt í kröfugöngunni.

Hann greindi heiminum frá því sem átti sér stað í Alsír. Í starfi sínu sem blaðamaður gerði Khaled sér far um að skýra frá Hirak-mótmælahreyfingunni sem berst fyrir frelsi og mannréttindum í Alsír. Líkt og gildir um margt ungt fólk í Alsír lítur Khaled á Hirak-mótmælahreyfinguna sem tækifæri til að koma á sanngjarnara og betra samfélagi.

Þegar Hirak-mótmælahreyfingin komst á laggirnar var Khaled fyrsti óháði blaðamaðurinn til að greina frá vikulegum mótmælum í landinu og skýrði einnig frá lögregluofbeldi gegn mótmælendum þegar það átti sér stað. Umfjöllun Khaleds kom honum í ónáð hjá yfirvöldum og var hann margsinnis settur í varðhald fyrir vikið.

Þann 27. mars 2019 var Khaled handtekinn í framhaldi af umfjöllun um mótmælin. Hann var ákærður fyrir að hvetja til samkomu óvopnaðra mótmælenda  en var í reynd eingöngu að sinna starfi sínu sem blaðamaður. Hann átti yfir höfði sér 10 ára fangelsisdóm en í september 2020 var hann dæmdur í tveggja ára fangelsi.

„Af hverju ætti fólk að stilla sig um að segja sannleikann?“ Khaled er blaðamaður og ákveðinn í að halda áfram að fjalla um þann veruleika sem landið hans stendur frammi fyrir. Hjálpaðu okkur að tryggja að Khaled geti haldið því áfram!

Krefstu þess að stjórnvöld í Alsír leysi Khaled tafarlaust úr haldi.

Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.