Yfirvofandi aftökur

Behrouz Ehsani, 69 ára, og Mehdi Hassani, 48 ára, eiga á hættu að verða teknir af lífi eftir að hæstiréttur hafnaði beiðni um að endurskoðun á málsmeðferð í máli þeirra. Þeir voru dæmdir til dauða í september 2024 eftir afar ósanngjörn réttarhöld sem stóðu yfir í aðeins fimm mínútur og var litið fram hjá ásökunum þeirra um pyndingar og aðra illa meðferð til að þvinga fram „játningu“.

Frá árinu 2022, í kjölfar uppreisnarinnar „Konur, Líf, Frelsi“, hafa írönsk yfirvöld í auknum mæli beitt dauðarefsingunni til að vekja ótta meðal Írana og herða tökin á völdum. Árið 2023 tóku írönsk yfir­völd að minnsta kosti 853 einstak­linga af lífi, sem er 48% aukning frá árinu 2022. Líklegt er að raunverulegur fjöldi aftaka sé mun hærri þar sem írönsk yfirvöld veita ekki opinberan aðgang að upplýsingum um aftökur.

„Aftaka á hverjum degi“

Í bréfi frá Behrouz, sem hann skrifaði eftir að hann hlaut dóm,hvetur hann alþjóðasamfélagið til að mótmæla og kalla eftir því að yfirvöld í Íran bindi enda á víðtæka beitingu dauðarefsingarinnar.

„Ég hvet [alla] til að mótmæla aftökum í Íran í dag, því á morgun verður það of seint. Eftir 22 mánaða óvissu hafa yfirvöld nú kveðið upp dauðadóm yfir mér án nokkurra sannana. Við búumst ekki við öðru af þessukerfi byggt á aftökum… Auk pólitískra fanga eru venjulegir fangar teknir af lífi á hverjum degi… “ Behrouz Ehsani

Skrifaðu undir ákall og krefstu þess að írönsk yfirvöld:

  • Ógildi dauðadóma yfir Behrouz Ehsani og Mehdi Hassani og leysi þá úr haldi án tafar.
  • Veiti þeim aðgang að fjölskyldum sínum og lögfræðingum fram að lausn þeirra.
  • Rannsaki ásakanir þeirra um pyndingar og sæki gerendur til saka í sanngjörnum réttarhöldum án þess að beita dauðarefsingu.
Má bjóða þér að skrifa undir fleiri mál?
Thanks for signing this particular petition
This is just a demo. You can put whatever you want in these pop-ups.