Mannréttindasamtökin Amnesty International og ALQST vara við alvarlegri hættu sem fólk á ferðalagi til Sádí-Arabíu getur staðið frammi fyrir. Þetta á jafnt við um ferðafólk og þau sem fara í pílagrímsferðir á borð við Hajj og Umrah. Einstaklingar geta átt á hættu að vera handteknir og sæta gróflega ósanngjörnum réttarhöldum vegna ummæla sinna á samfélagsmiðlum. Þá geta þeir átt von á að vera dæmdir í margra ára fangelsi. Þetta á jafnvel við þótt færslunar hafi verið birtar áður en þeir komu til landsins.
Samtökin hafa skráð níu mál frá tímabilinu 2022 til loka árs 2025. Fjórir einstaklingar voru í Hajj- eða Umrah-pílagrímsferð en hinir fimm voru ýmist að ferðast eða hitta ættingja. Sumir voru handteknir skömmu eftir komuna til Sádí-Arabíu. Aðrir voru handteknir meðan á dvöl þeirra stóð eða þegar þeir voru að yfirgefa landið. Í öllum tilvikum voru viðkomandi einstaklingar yfrheyrðir vegna samfélagsmiðlafærslna sinna. Þeir sættu langvarandi geðþóttavarðhaldi, gróflega ósanngjörnum réttarhöldum eða töfum á aðgengi að ræðismannsaðstoð. Í tveimur tilvikum var þeim jafnframt meinað að miðla upplýsingum til fjölskyldna sinna erlendis.
Handteknir vegna samfélagsmiðlafærslna
Ýmsir erlendir ríkisborgarar hafa verið handteknir fyrir samfélagsmiðlafærslur eða aðra friðsamlega tjáningu, þar á meðal fólk frá Hollandi, Jemen, Líbanon, Bandaríkjunum og Kanada. Í sumum tilvkum hefur fólk verið haldið í marga mánuði eða ár án þess að formleg ákæra hafi verið gefin út. Þá eru dæmi um að fangar hafi verið beittir líkamlegu ofbeldi eða neyddir til að undirrita skjöl á arabísku sem þeir skildu ekki.
Á meðal þeirra sem hafa verið handrteknir er breski ríkisborgarinn Ahmed al-Doush, en hann afplánar nú fimm ára fangelsisdóm vegna færslna sem hann birti áður en hann kom til Sádí-Arabíu. Annar er franski ríkisborgarinn Amr Abdelfattah sem var handtekinn í Hajj-pílagrímsferð. Hann sat í varðhaldi í meira en ellefu mánuði áður en réttarhöld hófust. Báðir hafa þeir sætt miklum takmörkunum á samskiptum við fjölskyldur sínar og aðgengi að lögfræðiaðstoð.
Andlegri heilsu þeirra hefur hrakað í fangelsinu.
Amnesty International hefur áður skjalfest fjölda mála þar sem sádí-arabískir ríkisborgarar hafa verið fangelsaðir vegna samfélagsmiðlafærslna sinna. Bæði samtökin telja að raunverulegur fjöldi slíkra handtaka sé líklega mun meiri en þau mál sem samtökin hafa getað skjalfest. Skortur á gagnsæi og ríkjandi ótti í landinu gerir það erfitt að fá upplýsingar um mál sem þessi. Samtökin hafa jafnframt komist að þeirri niðurstöðu að stjórnvöld víða á Arabíuskaga hafa hert aðgerðir sínar gegn tjáningarfrelsinu. Það hefur verið gert í kjölfar stríðsins sem Bandaríkin, Ísrael og Íran heyja.
Ákall Amnesty International og ALQST
Sádí-Arabía fjárfestir nú verulega í ferðamennsku samkvæmt Vision 2030-áætluninni. Með henni stefnir landið að því að taka á móti 150 milljónum ferðafólks fyrir árið 2030. Markmiðið er að auka fjölbreytni í efnahagslífinu, efla „líflegt“samfélag og styrkja stöðu landsins sem alþjóðlegs áfangastaðar. Á bak við þessa vandlega mótuðu ímynd ríkir áfram óttastjórnun og hörð kúgun. Langvarandi árásir stjórnvalda á tjáningarfrelsi borgara sinna hafa nú einnig náð til erlends ferðafólks.
Á sama tíma viðheldur landið afar íþyngjandi lagaumhverfi. Þessi lög gera friðsamlega tjáningu, sem nýtur verndar samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum, refsiverða og leggja þung viðurlög við henni.
Sérstakur sakamáladómstóll Sádí-Arabíu fyrir hryðjuverkamál (SCC) hefur ítrekað beitt óljósum ákvæðum laga um netglæpi og hryðjuverk. Þeim er beitt til að jafna lögmætri tjáningu við hryðjuverk. Einstaklingar sem heimsækja landið eiga því á hættu að vera dæmir í margra ára fangelsi fyrir að nýta tjáningarfrelsi sitt.
Amnesty International og ALQST kalla eftir því að ríki heims þrýsti á stjórnvöld í Sádí-Arabíu að stöðva þessa atlögu að tjáningarfrelsinu og sleppa tafarlaust öllum þeim sem eru í haldi fyrir að hafa nýtt rétt sinn til tjáningar. Jafnframt eru stjórnvöld annarra ríkja hvött til að endurskoða og uppfæra leiðbeiningar sínar til ferðalanga svo að þeir séu upplýstir um þá áhættu sem samfélagsmiðlanotkun þeirra getur skapað við heimsókn til landsins. Þetta er sérstaklega brýnt í ljósi þess að Sádí-Arabía undirbýr sig nú fyrir Expo 2030 og heimsmeistaramótið í knattspyrnu arið 2034.

